18júní

Húmor Suðurhofs í dag:)

Mikil er tæknin !

Þrír múrarar sitja saman í gufubaði. Allt í einu heyrist lágt bíp-hljóð.
Tommi ýtir á ennið á sér og hljóðið hættir.
Hinir horfa á hann í undrun.
"Þetta er símboðinn minn", segir Tommi. "Hann er græddur undir skinnið á enninu á mér. Bað um að ég yrði látinn vita þegar búið væri að opna tilboð í flísalögn í Laugardagslauginni".

Nokkrum mínútum seinni heyrist lágvær hringing. Jói stingur vísifingri vinstri handar í eyrað á sér og talar nokkur orð í stórutá hægri fótar.

Hinir horfa með mikilli undrun. Eftir samtalið segir Jói: "Þetta er gemsinn minn. Lét græða hann í puttann og tána. Konan var að láta mig vita að hún er að fara í klippingu og strípur."

Gumma, sem fannst hann vera hálf gamaldags og ótæknivæddur, prumpar, stendur upp og fer fram í nokkrar mínútur, kemur aftur inn og hangir þá klósettpappír út á milli rasskinnanna á honum. Hinir horfa á hann og eru eitt spurningarmerki, svo Gummi segir: "Ég var að fá fax ...."!

Þetta er bara snilld!Smile

18. júní 2009 klukkan 11:46
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
1 athugasemd
27apríl

Djöfull er lífið dásamlegt!

Nei...Góðann daginn elskurnar og takk fyrir síðast og þar áður og þar áður...sem þýðir það að ég sé ekki búin að blogga í hvað ár eða eitthvað!

En...skiptir ekki öllu. Ég ætla að vekja upp bloggið aftur því að ég er engann veginn að njóta fésbókarinnar einsog allir hinir. svo er fólk ennþá að fylgjast með blogginu...talandi um þráhyggjuWink nei bara djók.

Það hefur ekki farið á milli mála síðustu tvo daga að sumarið er að ganga í garð og það með sólríkum björtum dögum og fáklæddu of þungu fólki einsog Esteríus sem að nær aldrei blessaða sundlaugarbakkanum. Annað hvort er hann svona óskaplega langt í burtu eða akkerið sé fast niðri hvað haldið þið???
   Nú er að duga eða drepast. Há öldruð konan getur ekki leyft sér að vaða hér um allar tryssur étandi konfekt, osta og rauðvín! Já nei nú er það bara grænfóður og breezer er það ekki Elín? hljómar allavega vel í mín eyruCool


En smá uppdate af mér
* ég er farin að vinna í mötuneytinu í skólanum og skúra svo í féló einsog ég gerði áður það er bara æði.
* við fluttum í nýja húsið 23 des klukkan 17 það var æði
* ég á frábæra fjölskyldu, frábæra vini og frábært líf!
svo einfalt er það baraSmile 

Takk allir fyrir að vera hluti af þvíWink

ps.er ekki komið að öðrum en mér að halda partý????Wink

27. apríl 2009 klukkan 22:16
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
29nóvember

Allt á jákvæðu nótunum:)

Mig langaði bara til að minna ykkur á hvað það er yndislegt að vera tilSmile
Ég á tildæmis yndislegann mann sem gerir allt fyrir mig og fæ sko aldrei leið á fallegu, yndislegu strákunum mínum!!! Svo má ekki gleyma öllu frábæru vinunum og ættingjum...Wink

Mér finnst ég allavega rosalega heppin að vera ég allavega vildi ég ekki vera Geir, Davíð eða restin af klúðursgrautnum.
Hér er ein góð mynd af því hvernig þjóðarsvipurinn er í dag...það vill enginn þekkjast...


Jú ég er ein af þeim sem er með lán og ekki það allra hagstæðasta en...ég á vini, ég á fjölskyldu, mann og börn. Ég er ennþá með tvær vinnur sem mér þykir bara glettilega vænt umSmile Ég bý í fallegasta hrepp veraldar og ég á stærsta og krúttlegasta knúsu-hund í heimi.

Ég er jólabarn dauðanns er einsog litlubörnin þegar ég sé jólaskraut og jólaljósin. Ég er yfirleitt farin að hlusta á jólalög í septemberSmile
Núna er rauðkálstíminn í vinnunni og ég tek sko alltaf geislaspilarann með mér og hlusta á jólalög allann daginnSmile

Svo er það að frétta af húsinu að við flytjum örugglega inn viku fyrir jól. Það er verið að setja í loftin núna í þessu töluðu orðum, búið að setja upp eldhúsinnréttinguna og svo er verið að hlaða vegginn hjá klósettinu. Þetta er bara spennó. Við erum svo ánægð með allt í húsinu það er ekki 100% EN... það er þó húsið okkar. Notað hornbaðkar, notað klósett, notaður vaskur, notaðar hurðir og svo mætti lengi telja en samt...húsið okkarLaughing

Skvízers eigum við svo ekki að fara að hittast. það kostar allavega ekkert að hittast en kannski ef við ætlum að gera eitthvaðWink það er spurning um að fara að safna dósumCool nei segi svona, en ég er alltaf til. Hvað segið þið um að senda kallana ykkar niður í hús til mín að parketleggja á meðan við fáum okkur breezer og djús???Wink bara hugmynd sko!

Þið sem sáuð ekki Logi í beinni í gærkveldi ættuð að horfa á endursýningu á því þegar að Logi spurði Kristínu Helgu ,,skítur þú mikið" ég er ennþá að hlæjaLaughing 
En Ester ofur-skvís sem hefur hafið eitt átakið enn kveður að sinni
"þangað til næst, geta draumar Geirs ræst" Tongue out

yfir og undir

hressleiki vikunnar er...





Ester út

29. nóvember 2008 klukkan 22:51
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
4 athugasemdir
27október

My heart is beating like a jungle drum...

Jahérna hvar eigum við að byrja að þessu sinni?

Nú hef ég ekkert skrifað síðan Davíð og hans crew tóku ísland í lófa sinn og hreinlega skeindu sér á öllu sem að ég hef unnið mér fyrir í lífinu og jafnframt því sem að gamla fólkið hefur áunnið sér í lífeyrir til loka áranna.

Hvað eigum við að gera við svona menn?
Já ég get sko bara ekki setið á mér að koma með alvarlegt blogg því þessir menn eru jú á launum frá mér!

Og Geir HORde mikið í andskotanum hata ég þessa menn.
Þeir geta endalaust sagt þessi og hinn og hinn og þessi gerði þetta
en eru þeir ekki í vinnu? Og hvað felst í henni? svo talar horið um að grípa inní ! grípa inní hvað? maður grípur ekki inní vandamál þegar þau eru þegar skeð!!!

Jú Davíð gat verið glaður að koma Jóni Ásgeiri á hausinn(að hann hélt).
Ég segi bara aftur, hvað eigum við að gera við svona menn?
Jú ég veit það vel að ef að ég stæði mig ekki í vinnu yrði ég rekin en svo verður hver að dæma fyrir sig.
Hvað í andskotanum eigum við að kjósa næst og hvernig getum við verið viss um að fólkið sem við kjósum sé ekki jafn virkilega sjálfselskt og jafn miklir þvílíkir sauðir og sitja nú við stjórn!

Jú nú hugsa margir hún er bara vitlaust og veit ekkert hvað hún er að segja en það kemur mér andskotans ekkert við.
Það sem ég veit er það að það er þessum skítseiðum að þakka að meira en 60 % landsmanna eiga ekki pening fyrir mat þó það séu mánaðarmót, hvað þá pening fyrir jólagjöfum handa börnunum sínum og jólamat.

 Davíð þú veist þá kannski ekki að það er einmitt Bónus sem að Jón Ásgeir er viðriðinn við, sem að hjálpar fólkinu í landinu að lifa því jú þeir selja okkur ekki bara ódýrari matvörur heldur gefa þeir miljónir á mánuði í mæðrastyrksnefnd svo að fólk fái að borða en hvað gerir þú í blankskónum með gull og silfur í hverjum pakka undir kristalstrénu þínu? Þú gætir nú kannski boðið Geir vini þínum uppá bjór í kristalglösunum heima hjá þér og jafnvel uppá eitt glas af góða koníakinu þínu sem þú komst með heim á þessu ári eftir eitthverja af þessum flottu utanlandsferðunum þínum á launum!

Geir HORde nú skulum við aðeins tala um þig elsku kallinn minn...
Hættu nú að tala um að eyða allri óvissu. Það er eitt sem er víst að það er þegar þu talar frammi fyrir þjóðinni skaltu tala íslensku ekki eitthvað hagfræðimál sem að ekki einu sinni þú sjálfur skilur!
Og það með að allt fé sé tryggt sem að fólk átti...
...ÞAÐ ER MINNA EN 30% AF ÞJÓÐINNI SEM Á PENINGA AF VITI INNÍ BANKA COMMON!!!! Eyða óvissu skoðaðu nú hvað felst í þeim orðum. 
Ég get nú aðeins aðstoðað þig við það. Í þessu tilfelli vill fólk fá að vita hvort það verði atvinnulaust, hvort þetta komi til með að lagast hvort að það sé virkilega verið að gera eitthvað í málunum og hvort fólk hafi efni á því að eiga húsaskjól. 

 Hvað með okkur hin sem að erum að koma undir okkur fótunum? Ég get nú bara sagt þér það að þú hefðir getað komið til mín með keðjusög og ekki bara kippt undan mér fótunum heldur bara gjörsamlega sagað af við mitti!!!
Okkur er sagt eitt einn daginn og hitt hinn daginn svo er góði kallinn hann Björgvin að reyna að gera eitthvað í málinum og hann virkar sem peð við hliðina á ykkur Dabba en svo skemmtileg vill til að fólki lýst vel á hann en ekki ykkur, kemur það kannski málinu við, að þið þolið ekki góðu gæjana.
æ ég veit ekki. Þetta minnir mig nú stundum á rifrildi á róló í gamladaga hver gerði hvað! Það er bara ekkert sem að skiptir máli núna. Það eina sem skiptir máli er hvað gerist næst?

Eitt er víst að ef að ég myndi mæta öðrum hvorum af þeim í búð myndi úff það er ekki rithæft ætli mér yrði bara ekki stungið í steininn fyrir að skrifa eitthvað ljótt um þessar elskur. Því jú þeir reyna að gera allt sem í þeirra valdi stendur...þeir hafa ekkert vald lengur hér með hafið þið það Davíð og Geir þið eruð hér með reknir og ekki nóg með það heldur vilja Bretar fá ykkur í herinn og ég sagði að það væri minnsta málið þannig að nú getið þið farið í frí við ykkar hæfi Góða ferð elskurnar (ps. ég pantaði almennt farrími í aftasta sæti með icelandexpress have a nice trip!!!!)

Og takk innilega fyrir hjálpina!






27. október 2008 klukkan 21:41
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
6 athugasemdir
14september

Afmælisblogg

Góðann dag kæru landar nær og fjær.

Ég vil nú byrja á því að kynna mig, fyrir ykkur sem að eru búin að gleyma mér. Ester Ágústa Guðmundsdóttir heiti ég stundum kölluð Ester hans Jóns en annars bara Ester. En fyrir þau sem að mundu eftir mér en trúðu bara ekki að ég væri á lífi, þá er ég ennþá hér og berst ótrauð áframHlæjandi Ég varð fyrir þeirri heppni um daginn að eiga svo kallað afmæli sem er nú ekki frá sögu færandi nema það að ég afrekaði að ljúka 1/4 eða 1/3 af ævinni(ef að ekkert kemur uppá 7,9,13)sem að telst bara nokkuð gott miðað við hversu þung og ófríð ég erSvalur

Allavega hélt ég uppá afmælið 6. September á Útlaganum. Djöfull var innilega, æðislega, frábærlega, ógeðslega skemmtilegt!!! Þarna voru allir VINIR MÍNIR mættir(þið sem mættuð ekki ekki kallast núna vinir númer tvö í minni símaskrá!!!spaug í gangi) í grímubúningum og sumir höfðu meira fyrir þessu en aðrir og ég var ekkert smá ánægð ég var nú alveg viss um að þetta háttvirta og prúða fólk myndi nú ekki láta hafa sig af fíflum og mæta í búningum einsog leikskólabörn en það gerðu þau samt og það allt fyrir vinkonu sínaBrosandi

Við mættum á Útlagann um klukkan 20 og vorum þar til eitt og fórum þá í eftirpartý heim til okkar þar sem var sungið og trallað til klukkan tæplega 5 um morguninn...enn og aftur allir saman þetta var afmæli sem ég gleymi aldrei og takk innilega fyrir mig. Nú fer maður bara í dekur í riverside spa á selfossi, setur á sig krem og sólarpúður, hálsmenið og eyrnalokkana, skellir sér úta að borða á Rauðahúsið og þambar svo rauðvínið á leiðinni út á keflavíkurflugvöll þar sem við endum daginn í kóngsins köben:) Ég á bestu vini í heiminum pælið í því!!!

En talandi um það hvað ég er ljót þá fór ég í húsasmiðjuna um daginn fyrir manninn minn sem er nú ekki frásögufærandi nema það að ég er nú voðalega þreytt húsmóðir í fjórum vinnum með eiginmann, tvö börn og heimili til að sjá um sem er enginn smá pakki útaf fyrir sig...
...einsog þið eflaust vitið þá gengur nú stundum svolítið mikið á hjá mér og alltaf skal ég mæta of seint allsstaðar nema þarna þurfti ég virkilega að mæta fyrir lokun í húsasmiðjuna til að skila tækjum aftur í tækjaleiguna hjá þeim(og Ester muna að segja köllunum að dekkið er að detta unda einni vélinni einsog ég sé alltaf að gleyma eitthverju!!!). Þar sem ég geng útúr bílnum með bæði börnin í aftursætinu öskrandi KOMA MEÐ KOMA MEÐ!!! opna ég skottið í snarhasti, ríf helvítis vélarnar út úr bílnum og ber þær í sitthvorri hendinni í áttina að hurðinni. Þar nem ég staðar og ríf upp hurðina á helvítis kompunni, þar stóð ungur maður sem tók næstum því heljarstökk afturábak og öskraði SJITT!!! Ég stóð sveitt fyrir utan með báðar vélarnar í höndunum og sagði: ,,slappaðu af það eru til ljótari konur heldur en ég!" skelltu svo tækjunum í gólfið, þar sem að hjólið þurfti einmitt að detta af,og galaði svo:,, þetta fer í reikning, ég er með grenjandi börn útí bíl, þið reddið þessu bara er þaggi???"
,,Jú ekkert mál vinan, þakka þér fyrir"
Svo settist ég uppí bíl og fékk hláturskast eftir smá stund komst ég að niðurstöðu....Ég er ofvirk spurning um að Jón gefi mér rídalín í jólagjöf þá fær hann mig kannski til að anda inn út inn inn út hver veit!!!

Ég á eftir að setja nokkrar myndir inní albúmið en þær koma seinna:)

ég segi þetta gott í bili verið þið dugleg að sparka í rassinn á mér ef að ég verð löt við að bloggaBrosandi
(ps. ég er farið að fara út að hlaupa á fríkvöldunum mínum ef að einhver vill fljóta meðGlottandi)

afmælisskvísan yfir og út 
14. september 2008 klukkan 21:33
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
11 athugasemdir
30ágúst

Niðurtalning hafin

Jæja nú er niðurtalning hafin fyrir afmæli ársins...
...bara vika í herlegheitin og ég er nú bara orðin nokkuð spennt að hitta ykkur öll og dansa af mér rassgatiðGlottandi

Hér er sko allt komið á hreint með búninga en þeir verða sóttir í vikunni ásamt áfenginu.
Hugmyndin er sú að við hjónin ætlum út að borða á pizza sel  um fimm leytið og allir eru velkomnir með (bara snarl í afmælinu).
Þeir sem ætla að gista hjá mér þurfa að láta mig vita svo ég geti gert pláss fyrir allaHlæjandi

Bjór og bolla verður í boði á meðan staðurinn er lokaður fyrir almenning eða til 22:30 ca. svo þið megið alveg eiga áfengi ef það verður eftirpartý og svona(fer eftir ástandi mannaUllandi)

Svo megið þið alls ekki klikka á BÚNINGUM
!!!

Ég minnkaði um 2 cm.nóttina sem ég átti afmæli og er mér sagt að það sé merki um það að ég sé að eldast en því trúi ég nú ekki. Ég er ung og liðug ennþá og verð sko ekkert eldri nema 25 þá kemur 25+1, 25+2 osfrv.

Annars er bara vetrar vinnan byrjuð á fullu í Silfurtúni, sundlauginni og skólanum ásamt því að syngja stundum um helgar og þreyta sem fylgir þvi, þess vegna er ég farin að fara út að hlaupa á hverjum degi til að koma mér stand fyrir veturinn.
Allir sem vilja koma með á kvöldin látið vita.

Eigum við eitthvað að ræða það hversu óheppin ég er???
á þessu ári er búið að keyra 2 sinnum á mig og skemma bílinn minn 1 sinni!  Ég vona að kvótinn sé búinn fyrir næstu árinSaklaus

Jæja gott fólk
7 DAGAR!!!!!!!!!!!!

ég kveð ykkur fallega fólkið í bili
yfir og út!

(ps. Dúna veistu hvort það verður lifandi tónlist?)

30. ágúst 2008 klukkan 09:20
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
10 athugasemdir
17ágúst

hæhójibbíjeij og jibbíjeij það er kominn...

...17. Júní eða ekki. Sumar rétt að byrja. Fór sko gjörsamlega framhjá manni. En þetta breytist þegar maður verður 67 þá er bara sumar 24/7 365 daga á ári. En talandi um það þá verð ég 25 ára bráðum og...í tilefni þess ætla ég að hafa vísnakvöld í kvenfélagsskóginum á jólunum. NEI...eða allavega ætla ég ekki að mæta þangað heldur verður brjálað tjútt á Útlaganum hér á Flúðum(ef þið vissuð það ekki) laugardaginn 6. September kl.20.
Þema kvöldsins verður.............................................................
......................
Grímubúningar!!!!!!!!! Ekki klikka á því!
Ég er búin að gera boðskort og á bara eftir að koma þeim í póst sem verður í þessari viku í næstu ferð á Selfoss.
Svo krossum við bara fingur og vonum að það verði gott band á Úllanum.

Annars hef ég voðalega lítið annað að segja nema það að skólinn er búinn, vinna dauðanns byrjar í þessari viku þvottavélin dó fyrir mánuði ef ekki meira og ný á leiðinni á morgun.

Jæja ég ætla að klára að græja boðskortin
þau koma í síðastalagi í næstu vikuHlæjandi
Nú fara allir í það að græja búning fyrir sig því það er góður fyrirvari á þessu engar afsakanir teknar gildarGlottandi 

afmælistúttan sem er að deyja úr spenning
OUT
17. ágúst 2008 klukkan 22:20
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
8 athugasemdir
06júlí

Brjáluð bloggleti í gangi

Jæja, jæja

Ég er nú orðin frekar löt við að blogga enda lítill tími á þessu heimili til þess að sitja við tölvuna og blogga. Allur tíminn við tölvuna á kvöldin fer í að læra enda er það að skila mjög góðum árangri. Búin að skila fjórum verkefnum þar af tveimur ritgerðum og meðaleinkunin er 10Hlæjandi Mér hefur bara aldrei gengið svona vel í skóla áður, þó svo að ég væri nú alveg til í að hafa mikið meiri tíma til að læra. Kvöldin er eini tíminn sem mér gefst og er ég oft að læra langt frameftir nóttu og mæti svo í vinnuna klukkan 8. Já greyið ég...nei djók, þetta er bara gamanGlottandi

Það er nú margt búið að gerast síðan síðast og ég man það nú ekki allt enda mjög langt síðan. Allavega er litla frænka hún Ísabella Rún fædd og það er sko bara eitt orð yfir hana hún er algjört rassgat!!! maður er nú ekki frá því að það klingi smá hjá manniSkömmustulegurnei ekki tími ...allavega ekki í bili.
Svo eignaðist Hrönn vinkona strák sem ég á nú bara algjörlega eftir að máta(já ég veit ömurleg vinkona)
Svo útskrifaðist Freyjan mín um daginn og fórum við í smá teiti til hennar þar sem að við vinkonurnar hoppuðum á trampólíni allann tímann reynum líka að halda okkur í formi á djamminu erum svo æðislegar!!!
Svo átti línan okkar afmæli bara 19 einsog alltaf!

En að allt öðru húsið gengur ágætlega miðað við hvað Jón vinnur mikið í vinnunni sinni alla daga, allann daginn og er þetta fyrsta helgarfríið hans í allt sumar en við höfum ekki séð hann alla helgina þar sem að hann er byrjaður að kasta á í húsinu og óskum við hér með eftir vinum og ættingjum sem eru að láta sér leiðast í fríinu. Ykkur er velkomið að koma og múra, rappa, sópa og margt fleira alltaf nóg að gera í húsinu. Frí gisting í staðinn og jafnvel ferð á pöbbinn fer sko algjörlega eftir dugnaði og afköstumSvalur Þó ekki uppköstum.


Get ekki beðið eftir næsta djammi þarf sko að fara að sletta ærlega úr klaufunum og svo styttist í afmælispartý sem verður síðustu helgina í ágústGlottandiÞað verður sko partý ársins!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Farin að læra
adios babe's
06. júlí 2008 klukkan 12:12
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
9 athugasemdir
27maí

Svaðalegt mont í gangi!

Vildi bara deila því með ykkur að ég var að koma heim úr maraþoni dauðanns!!!
Lét 4 ára draum rætast og hljóp Maríuhringinn
Hlæjandi

Hvenær er svo næsta djamm girlís???


27. maí 2008 klukkan 23:08
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
10 athugasemdir
22maí

Eitt gott fyrir helgi...

...ég er ennþá á lífiHlæjandi

Konur ég minni á að það erum við sem ráðumSvalur


Kíktu á þetta:)
Góða helgi

Esteran kveður
22. maí 2008 klukkan 22:05
Ester Ágústa Guðmundsdóttir
1 athugasemd

Könnun

hvað segið þið með áframhaldandi blogg

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit